Sunnudaginn 7. febrúar kemur í ljós í hvorum undanriðlinum Ísland keppir í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva, Evróvisjón, í Osló í maí. Fyrri undanriðillinn er 25. maí en sá síðari 27. maí. Aðalkeppnin fer fram laugardaginn 29. maí.
Miðasala á Evróvisjón keppnina í Noregi í maí hefst mánudaginn 8. febrúar, samkvæmt því sem fram kemur á opinberri heimasíðu keppninnar. 90 þúsund miðar verða í boði.
Um tveir tugir starfsmanna starfa við hvern þátt af Söngvakeppni Sjónvarpsins og að baki liggur mikill undirbúningur. Áhorfandinn verður þessa starfsmanna ekki var, enda vinna þeir að því að allt líti út fyrir að gerast áreynslulaust.